:Fréttir
Truss fyrir skotpall
12.Jun.2009 - 01:00
Eldflaugafélagið er að leita eftir svokölluðum trússum sem eru notaðir við uppsetningu á td. auglýsingaskiltum, hljómleikasviðum og ljósabúnaði.
Ef einhver getur bent okkur á sölu eða leiguaðila sem er tilbúinn til að leigja, selja, lána eða gefa okkur þá endilega hafið samband við Magnús í síma 8979201 eða magnus[at]eldflaug.com
Hér til hliðar má sjá trúss í öllu sínu veldi. Hugmyndin er að nota þessar súlur til að smíða skotpall.
> Athugasemdir (0)
Grind og flangsi fyrir rafeindabúnað
28.May.2009 - 01:00
Á myndunum þremur er hægt að sjá grindina, flangsann og önnur festistykki fyrir rafeindabúnaðinn. POM plasstykkjunum hefur verið skipt út fyrir messingsplötur Þetta var fyrst og fremst gert til að auka styrk.
Rafeindabúnaðurinn er festur á 1 mm þykka álplötu. Álplatan er styrkt með 6x6 mm firkant stöngum en þær eru festar með þremur M3 boltum. Stangirnir eru snittaðar fyrir M3 bolta í endann og messingsplöturnar festar þar á.
Neðri messingsplatann er undirsinkuð fyrir M3 boltana sem festir eru upp í stangirnar. Með þessu situr platan slétt við flangsann en flangsinn er festur með M4 boltum við messingsplötuna.
CO2 gasþrýstibúnaður er festur á flangsann og er notaður til að skjóta út fallhlíf í fyrirfram ákveðinni hæð. Notuð er smá hleðsla af púðri til að skjóta stimpli af stað sem rífur gat á CO2 hylkið. CO2 gas þenst þá út í fallhlífarhólfið og skýtur fallhlífinni út.
Rafeindabúnaðurinn samanstendur af eftirfarandi einingum:
Flugtölvu - mælir hæð, hraða og hröðun. Forritanleg fyrir stýringu á fallhlífarbúnaðinum
GPS móttakara - GPS loftnet nemur staðsetnignarhnit og sendir áfram í RF sendinn sem áframsendir hnitin niður í RF mótakara á jörðu niðri
RF sendi - 433 MHz
2x 2200 mAh 7.2V rafhlöðum
> Athugasemdir (0)
Flangsi og festiplötur
29.Mar.2009 - 01:00
Að undanförnu hefur félagið búið til flangsann sem heldur saman tveimur skrokkhlutum eða þar sem rafeindabúnaðurinn og fallhlífin er geymd. Flangsinn heldur einnig CO2 fallhlífsskotbúnaðinum á sínum stað eins og sjá má hér til hliðar. Flangsinn var búinn til úr 6063 áli. Eftir á að bora og snitta fyrir M4 bolta. Undirsinkaðar boltaskŕufur eru svo notaður til að festa skrokkinn og flangsann saman.
Einnig smíðuðum við tvær festiplötur sem halda rafeindabúnaðinum á sínum stað. Álstangir eru festar á plöturnar og álplata fest á stangirnar. Á álplötuna er svo rafeindabúnaðurinn festur en hann samastendur af þremur megin hlutum eða flugtölvu, GPS móttakara og RF sendi sem sendir GPS staðsetningarhnit niður á jörðu í rauntíma (e. real time).
Teikningar af flangsanum og plötunum.
Flangsi
Neðri diskur
Efri diskur
> Athugasemdir (0)
Spíttari og drifefnismót
23.Mar.2009 - 01:00
Driefnismót hafa verið búin til og má sjá þau hér til hliðar. Notað var POM plast í bæði miðjuna og diskanna. KNER drifenfinu er hellt ofaní mótið og miðjan dregin úr þegar það hefur kólnað niður í 20 °C frá 120 °C. Drifefnið er nógu fljótandi til þess að hella því í mótin eins og sjá má á þessu myndbandi.
Richard Nakka hefur einnig rennt fyrir okkur spíttara (e. Nozzle) sem notaður verður í mótorinn. Hann var renndur úr 1018 stáli sem svipar til st-35 vélastáli. Teikning af spíttaranum
> Athugasemdir (5)
Síðustu mánuðir
16.Mar.2009 - 01:00
Á síðustu mánuðum höfum við ákveðið að tveggja þrepa flauginni verður skotið upp með KNER drifefni en ekki rCandy eins og áætlanir stóðu til. Ákvörðun þessi er tekin vegna þess að rCandy drifefnið er mjög óáreiðanlegt og þá sérstaklega í stórum mótorum eins og við höfum búið til að undanförnu.
KNER drifefnið er blanda af gervisykrinum Erythritol og Saltpétri. Drifefni þetta er frekar nýtt á markaðnum en hefur ansi skemmtilega eiginleika sem nánar verður útlistað síðar.
Við höfum hafið vinnu á annari flaug sem knúin verður áfram af KNER en þessi flaug er nokkurs konar tilraunflaug fyrir tveggja þrepa flaugina. Flaugin mun ná allt að 4 km hæð og er í sömu stærðarhlutföllum og AIR 203 flaugin okkar en hefur að geyma rétt um fjórfallt öflugri mótor.
Það sem greinir þessa flaug helst frá hinum flaugunum okkar er að motorhólkurinn sjálfur er einnig notaður í skrokk flaugarinnar sem þýðir léttari flaug þótt að sama ytra þvermál haldist og með þessu er einnig hægt að hlaða meira drifefni í hana.
Hér til hliðar má sjá teikningu (fyrstu útgáfu) af flauginni og þá innanborðshluti sem hún hefur að geyma eins og GPS flugtölvu, CO2 gas búnað sem notaður er til að skjóta út fallhlíf ásamt 9 drifefniskubbum sem knýja flaugina áfram.
Að svo stöddu erum við að hanna mótorinn og verður hann prófaður í samstarfi við félaga okkar í DARK hér í danmörku. Flauginni verður svo væntanlega skotið upp mánaðarmótin júní/júlí á Íslandi.
Á næstunni munum við setja inn fleiri myndir af þeim búnaði sem við erum búnir að smíða að undanförnu.
> Athugasemdir (2)
Nýtt myndband
19.Nov.2008 - 00:00
Nýtt myndband er komið inn á Youtube svæðið okkar. Myndbandið sýnir sprenginguna sem átti sér stað í síðustu mótorprófun hjá okkur.
Sprenginguna má líklegast rekja til galla í bindiefni drifefnisins. Hér til hliðar er rammi úr myndbandinu þegar sprengingin átti sér stað.
Krafturinn sem losnaði úr læðingi var um 10 tonn en það er sá kraftur sem lok mótorsins verkar niður á við.
> Athugasemdir (0)
Opið Hús og annað
17.Nov.2008 - 00:00
Þann 29. ágúst var opið hús hjá félaginu og hélt ég (Magnús) stutt erindi um starfsemi félagsins. Erindið má nálgast hér.
Ég vil þakka öllum þeim sem komu en um 20 manns létu sjá sig. Til sýnis voru eldflaugar félagsins en markmiðið með sýningunni var að kynna starfsemi félagsins og leyfa fólki að sjá þann búnað sem við höfum hannað og smíðað á undanförnum árum.
Á fyrstu myndinni hér til hliðar má sjá tveggja þrepa flaugina sem er enn í smíðum. Hægra megin við hana er eldflaugin AIR 203 sem skotið var upp 2006 og vinstra megin er flaugin Freyja sem smíðuð var af nemendum Háskólans í Reykjavík.
Á næstu myndum er að finna þann búnað sem við höfum smíðað síðustu misseri. Helst má nefna, spíttara, mótora, vængi, mælibúnað fyrir prófun á mótorum, rafeindabúnað til mælinga á hreyfingu elflauga ofl.
Frá því í lok ágúst eða eftir að annar tveggja mótora tveggja þrepu flaugarinnar “sprakk” hefur engin eiginlega vinna farið fram en má það rekja til þess að ég er í námi í Danmörku og Smári er einnig starfandi pípari í Danmörku.
Samt sem áður höfum við unnið að greiningu “sprengingarinnar” og höfum við komist að því að annaðhvort var sprunga í drifefninu eða að drifefnið hafði ekki nóga bindingu við pappahólkana sem einangra hitann frá mótorhólknum. Nánar verður greint frá þessu er greiningu er lokið.
Vinna á flauginni hefst þó aftur milli jól og nýars og vonandi verður hægt að skjóta henni upp næsta sumar. Þar sem að félagið lifir á styrkjum frá fyrirtækjum og stofnunum mun næstu misseri vera erfið fyrir félagið en reynt verður að gera eins mikið og mögulega hægt er. Enn og aftur viljum við þakka styrktaraðilum og hjálparkokkum fyrir veitta aðstoð síðustu ár.
Þangað til seinna..
> Athugasemdir (0)
| Áfram |






