:Fréttir
Eldflaugaskot sunnudaginn 23. ágúst klukkan 13:00!
20.Aug.2009 - 01:00
Jæja þá er komið að því!
Eldflaugaskotið verður á sunnudaginn klukkan 13:00 á Höskuldarvöllum við Keili. Flaugin sem um ræðir er um 8 kg og þar af er drifefnið um 2 kg. Samkvæmt reikningum ætti flaugin að ná um 1000 km/klst og 3 km hæð en það tekur hana 25 sekúndur. Mesta hröðun er í kringum 17 g.
Hér er kort af leiðinni Leiðin er greiðfær öllum venjulegum fólksbílum en vegurinn er þó nokkuð mikið þvottabretti á köflum. Gerið ráð fyrir minnst 45 min akstri frá Reykjavik.
Ég vil vinsamlegast biðja fólk um að virða þær reglur sem gilda um utanvegsakstur og fylgja leiðbeiningum okkar um hvar er best að leggja bílum. Einnig vil ég biðja fólk um að fara eftir öllum þeim öryggisreglum sem við setjum. Við munum girða skotsvæðið af og vert er að passa að börn leiki ekki lausum hala enda sjá þau oft ekki hvar hætturnar leynast þótt við stóru börnin gerum það. Við viljum engin slys!
Einnig væri gott að fá svar frá þeim sem ætla að koma til að geta áætlað fjölda.
Ennþá á eftir að mála mótohólkinn og vængina en þá verður flaugin sett saman í fyrsta sinn og frumsýnd :)



