:Fréttir
Eldflaugaskotið í dag
23.Aug.2009 - 01:00
Eldflaugaskotið gekk vel í dag þótt að veður hafi ekki verið með okkur. Flaugin fór í loftið um 14:20 og flaug upp í ca. 2700 metra hæð og 1000 km/klst. Hæðin er lægri en reiknað var með en vegna mikils vinds sker hún sig upp í vindinn. Lengdarferill flaugarinnar ætti að vera í kringum 3 km. Ég hef ekki rýnt ítarlega í mæligögninn og hef því ekki nákvæm gögn.
Vegna vindstyrks og lélegs skyggnis sáum við flaugina ekki koma niður í fallhlíf en mæligögnin staðfesta það þó. Við lendingu misstum við sendingu frá búnaði flaugarinnar og þótt að við keyrðum um svæðið datt það ekki inn aftur. Við leituðum vel og lengi að henni en komum ekki auga á hana og því verður leitað að henni úr lofti á morgun með hjálp flugvélar.
Fyrsta ályktun er að flaugin hafi lent 1-2 km frá Keili eða um 3-5 km frá skotstaðnum en ef logn er lendir flaugin um 1 km frá skotstað
Frétt stöðvar tvö um skotið er hér
Meira á morgun...
Eftir: Þorsteinn
Til hamingju með þetta. Vonandi að þið finnið eldflaugina.
Eftir: Dofri Vikar
koma einhver vidio af flauginni?
Eftir: Magnús Már Guðnason
Takk Þorsteinn.
Engin upptökuvél var í flauginni en nokkur video voru tekin af skotinu sem ég er ennþá að safna saman og mun birta.



