:Fréttir

Eldflaugarskotið í gær

24.Aug.2009 - 01:00

Eldflaugin Globos tilbúin til brottfarar.

Ég vil þakka öllum þeim sem komu að fylgjast með þegar eldflauginni Globos var skotið á loft klukkan 14:20 að Höskuldarvöllum. Einnig vil ég sérstaklega þakka Binna, Eyþóri og Kára fyrir alla hjálpina við undirbúning skotsins bæði fyrir og eftir skot. Ég vil einnig þakka Arnóri og Jóa fyrir hjálpina á skotstað og öllum hinum sem tóku þátt. Án ykkur hefði þetta ekki reddast.

Samkvæmt gögnum úr RF sendi flaugarinnar náði flaugin um 2.7 km hæð, 1000 km/klst og þyngdarhröðunin var um 14 g. Flaugin náði hámarkshraða sínum á einungis 4 sekúndum! Því miður var slæmt skyggni og vindur var mikill og því erfitt að fylgja henni eftir og svo virðist sem engin hafi séð hana koma niður í fallhlíf en samkvæmt gögnunum sveif hún til jarðar undir fallhlíf.

Því miður klúðraði ég GPS búnaðinum og því eru engin staðsetningarpunktar og því er flaugin ennþá týnd! Í dag fór ég ásamt flugmanni og tveimur öðrum og flugum yfir hugsanlegan lendingarstað en því miður komu þau átta augu sem voru meðferðis ekki auga á flaugina. Við leituðum allt upp í 10 km radius frá skotstað og flugum þónokkrar ferðir fram og til baka rétt yfir 300 metra hæð.

Ég hef setið í allt kvöld og reiknað út mögulegan lendingarstað samkvæmt gögnum úr helíum blöðru sem sleppt var frá keflarvíkurvelli. Gögnin sýna allt að 25 m/s vindhraða í 2500 metra hæð sem þýðir að drift flaugarinnar er allt að 5-6 km. Ég hef einnig náð að ákvarða drift trajectory eða feril flaugarinnar undir fallhlíf en ferillinn sést hér sem rauð lína og endar á hugsanlegum lendingarstað.

Erfitt er þó að ákvarða lendingarstaðinn út frá gögnunum frá keflarvíkurvelli vegna fjallgarðanna sem eru allt í kringum Höskuldarvelli en að svo stöddu get ég ekki framkvæmt nákvæmari reikninga en ég hef þegar gert.

Þeir sem eru vanir að ferðast á svæðinu og þekkja til fólks sem leggur leið sína þangað eru vinsamlega beðin að hafa augun opin. Flaugin sjálf er rauð á litinn og fallhlífin er svört með fjólubláum böndum og rauðum toppi. Einnig eru gulleit Kevlar bönd sem eru ca. 10 metrar að lengd. Allt þetta gæti verið flöktandi en einnig er möguleiki að fallhlífin hafi rifnað af vegna vindsins sem gæti dregið flaugina áfram eftir hrauninu. Mynd af fallhlífinni.

Ég hef ekki gefið mér tíma til þess að fara yfir myndir og myndbönd af skotinu en ég mun senda þau fljótlega. Þó nokkrir voru á staðnum sem smelltu af myndum og myndböndum. Mjög gaman væri að geta nálgast þau video á einhvern hátt.

Hér eru myndir sem Jóhann Jóhannson tók.





Skrifa athugasemd

Nafn:
Athugasemd:
Leggðu saman þrjá og fjóra:

©2006 - hönnun: Elvar Steinn ( elvarsteinn[att]simnet.is )